Fyrstu dagarnir!

Jæja! Nú erum við loksins komnar!!

Þetta lítur allt mjög vel út og allt leikur við okkur. Ferðin gekk vel og tekið var á móti okkur með opnum örmum. Herbergið okkar er fyrsta flokks fyrir utan hundruði maura á gólfinu, sem við náðum reyndar að sópa burt. Við erum með okkar eigin svalir, eldhús, baðherbergi og sjónvarp. Sundlaugin er beint fyrir utan dyrnar og umhverfið er þægilegt og kósý. Fimm mín göngufjarlægð frá miðbæ Juan les Pins! Hefðum ekki getað ímyndað okkur betri stað. Fyrsta kvöldið fengum við okkur pítsu á einum af veitingastöðunum en villtumst því miður á leiðinni heim
L
Það bjargaðist þó með kortið við hönd, þótt grimmir hundar hafi gelt á eftir okkur.
DSCN0806

Sunnudagurinn var rólegur og við kynntum okkur hverfið. Við þorðum reyndar ekki upp að barnum en hann er í garðinum ásamt sameiginlegu eldhúsi, borðtennisborði ofl. Við fórum niðrá strönd, leigðum okkur bekk og flatmöguðum í sólinni. Hanna fór yfir frönskuna til að auka líkurnar á því að við lendum í sama bekk. Um kvöldið elduðum við dýrindis eggjasamloku eftir að hafa verslað í matinn. Við ætlum að reyna að vera duglegar við eldamennskuna í sumar til að spara pening. Við erum alveg búnar að komast að því að þetta á eftir að vera dýrt ferðalag. Bernard sem kynnti okkur fyrir pleisinu og gistiheimilinu sagði okkur skýrt frá því á frönsku að við gætum labbað í skólann og tekið strætó eða lest hvert á land sem er. Pæling að skreppa til Milano?

Skólinn byrjaði klukkan níu á mánudagsmorgun og við vel útsofnar. Öruggast var að taka strætóinn í skólann fyrsta daginn. Fyrst var kynning fyrir allan nýja hópinn og síðan rútuferð um Antibes sem einkenndist af miklum hita og hungri. Allt saman á frönsku NB og við skildum allt! (næstum). Inntökuprófið var eftir hádegi og var það mjög afslappað. Við sátum hlið við hlið og hjálpuðumst soldið að... Prófin voru samt ekkert ALVEG eins... Það gekk bara vel en þyngdist með blaðsíðunum. Svo voru nemendurnir teknir einn í einu inn í annað herbergi fyrir munnlegt próf. Það gekk ekki eins vel verður að segjast! En við vorum spurðar hvort við værum vinkonur og hvort við vildum vera saman í bekk, sem betur fer.DSCN0822

Við vorum fegnar að vera búnar með prófið og skelltum okkur á ströndina eftir að hafa keypt handklæði. Við fundum nefnilega út að það er ódýrara heldur en að leigja bekk fyrir 17 evrur skiptið... Próflokafagnaður var um kvöldið og byrjuðum við með sveppasúpu og hvítvín í hönd um kvöldið. Hitinn og matarleysið gerði það að verkum að hálf hvítvínsflaska fór beint í hausinn. Voða sætar héldum við niðrí bæ og byrjaði áreitið fljótt af frönskum peyjum. Við létum þá þó eiga sig, gelið var ekki að heilla. Eftir fáeina kokteila og rölt um skóbúðir fórum við fljótt heim. Horfðum á einn SATC – must. Morguninn eftir var þó pain. Nenntum ekki að labba þannig að við tókum strætó, en án þess að borða. Við komumst að því að við erum í sama bekk! En ekki fyrir advanced students eins og ég og Beta könnumst við. Heldur A1- Sem eins og fólk getur getið sér til um er næst lélegasti bekkurinn!! Við vorum ósáttar og sármóðgaðar. Við náðum ekki einu sinni í A1 heldur þurftum við að hafa mínusinn líka
L
DSCN0825Tólf manns í bekk sem reyndist fínt og kennarinn æði. Ekta frönsk sextug kona sem leit út fyrir að vera fertug. Það var mjög gaman í tíma, þótt við þráðum að komast heim að sofa og borða. Við erum með 3 íslenskum stelpum í bekk og 2 aðrar lentu í öðrum bekk. Ein er úr Verzló og hinar í MH. Mjög fínar. Þetta er draumaskólinn – franska allan daginn og hættir klukkan 12;)

Það var skýjað þannig að við tókum strætóinn til Carrefour og versluðum allt mögulegt! Td fleiri handklæði og mat. Síðan var það þynnkudagur heima og skruppum smá í bæinn að versla. Hanna keypti sér geðveikar hvítar stuttbuxur og Ragna klikkaða hvíta hælaskó.  Fajitas var í matinn og bragðaðist fínt. Hanna þurfti að hlaupa um allan bæ í leit að káli. Þegar við vorum að klára að borða var skyndilega bankað á hurðina. Við litum á hvor aðra og grunaði að það væri verið að kvarta undan hávaða. En það reyndist vera enskur strákur sem að bauð sér inn. Hann ætlaði bara að koma til að tjatta. Hann reyndist vera 28 ára frá London. Bara að leika sér á rivierunni. Klárlega pabbastrákur sem hefur ekki unnið í mörg ár. Við spjölluðum við hann í dágóða stund og kvöddum síðan og ítrekuðum að við værum bara að fara í háttinn. Horfðum á nokkra SATC fyrir svefn.

Í morgun löbbuðum við í skólann og rétt náðum á tíma. Kennarinn bað um að fá að tala við okkur íslensku stelpurnar í frímínútum. Hún bauð okkur að hækka um bekk. Við hugsuðum okkur vel um og ákváðum að vera um kyrrt því okkur líkaði vel við kennarann og við erum svo lélegar að tala frönskuna. Við vildum allar vera áfram.
Við vonumst bara til að þegar við förum í hinn skólann í júlí þá getum við farið í eitthvað erfiðara, þá verðum við orðnar svo góðar.

Nú er enski strákurinn sem við vitum ekki hvað heitir að bjóða okkur far og að koma með sér til Cap d’Antibes. Hehe, við erum sko í tölvunni!!
Hann situr hérna á móti okkur og segist ætla að bíða. Við erum þó búnar að segja að við ætlum bara að labba heim. Hann hljómar kannski sem einhver algjör lúði, en hann lúkkar alveg vel, brúnn og vel tilhafður. Við ætlum samt bara að fara til Nice að shoppa! Okkur þykir það nú ekki leiðinlegt..

Reynum að vera duglegar að blogga, því það er þráðlaust net í skólanum. Við reynum að blogga 2x í viku og setja inn myndir. Sem verða vonandi aðeins meira spennandi eftir því sem líður á...

Söknum ykkar allra voða mikiðJ
Kærar kveðjur frá Antibes

Au revoir et nous vous aimons:*
Hanna María og Ragna Sif


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verzla í Nice... er það ekki Nice?

Ég er að meta bloggið :) er með ykkur í RSS feed

Vísir (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 12:38

2 identicon

gaman að lesa þetta og vita hvernig allir staðirnir líta út:)

carrefour, nice, juan les pins:)

skemmtið ykkur æðislega vel!

Fanney (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 13:53

3 identicon

Vá hvað mig langar að vera þarna..haldið áfram að blogga;) Og farið varlega í frönsku gaurana!

Björg (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 14:19

4 identicon

Hæ skvísurnar mínar! Skemmtilegt blogg. Gott að heyra með skólann, en vá sjúklega margir íslendingar!! Þá er ekkert svona, "hvernig er þetta í þínu landi"....þú veist hvað ég er að tala um Ragna!
Hvað er samt málið með að vilja ekki kynnast enska stráknum? Þið skuluð nú ekki einangra ykkur inni á herbergi að elda og versla þess á milli

Ragna, kíktirðu í "skóbúðina" ?
Knús, knús og kiss kiss að heiman :*

Bára Dís (IP-tala skráð) 7.6.2007 kl. 20:16

5 identicon

hæjhæj stelpur mínar!:D

það er gott að að allt hafi heppnast vel með ferðina og herbergin og svona:) en vvvvvváááá hvað ég sakna þín hanna mín get ekki beðið eftir því að sjá þig aftur sem verður reyndar ekki fyrr en 19 ágúst:( en það er gott að heyra að þið séuð að skemmta ykkur vel:D BIG LOVE:D

max (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 15:33

6 identicon

Þú átt skilaboð á MySpace Ragna...

Bára Dís (IP-tala skráð) 9.6.2007 kl. 20:46

7 identicon

heheh.....ja va hva tad er skrytid magga min, ertu viss um ad vid munum ekkki einu sinni hittqst a flugvellinum, sakna tin lika ogo mikid, paldu i tvi ad tegar vid hittumst aftur ta er skolinn ad byrja daginn eftir;6  en erum ad reyna vera ykt duglegar ad blogga to tad gangi stundum erfidlega vegna hversu lelegt netid er i skolanum.... latum samt bratt i okkur heyra?;° va tetta er einum of flokkid lyklabord

Hanna Maria (IP-tala skráð) 11.6.2007 kl. 10:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hanna og Ragna í Frakklandi

Höfundur

Hanna María og Ragna Sif
Hanna María og Ragna Sif
Við erum tvær saman í Frakklandi að læra frönsku! Verðum í Antibes í 9 vikur og segjum frá dvölinni hér á þessari síðu

Nýjustu myndböndin

Kveðjur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 25.júlí (1)
  • Fokkin bíó
  • ...dscn1176
  • Nice
  • ...dscn1171

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband