Drama Queen

Ný vika framundan, troðfull af sól, frönsku og nýju fólki.
Þegar við skildum við ykkur síðast vorum við á leið til Nice með lest.DSCN0856 Við sögðum ykkur einmitt frá nýja “vini” okkar Ashley Holley, aka Ass-hole. Við getum svo sannarlega sagt að hann hafi haldið uppi dramanu í síðustu viku. Hann heimtaði að fá að skutla okkur heim, sem hann gerði. Við stungum hann af og héldum til Nice. Þar var veðrið ekki svo gott en við náðum samt að versla aðeins áður en okkur rigndi niður. Þrátt fyrir að við höfum ekki verið iðnar við shoppingið þá náðum við að eyða hátt í 50000 kr á einni viku! Reiknið nú:O
Ass-hole sendi okkur sms um kvöldið en við ætluðum bara að vera inni að horfa á SATC, þreyttar eftir langan dag. Hann lét okkur þó ekki vera daginn eftir, heldur kom til okkar rétt eftir hádegi. Við sátum við laugina í okkar mestu makindum og kemur þá ekki Anna Hildigunnur með Jönu og varar okkur við honum. Jana hafði víst sína reynslu af honum og orðið á götunni var að hann væri að nota stelpur í skólanum. Það er fyndin saga um hann, en hérna hengur hann, 28 ára drengurinn, ekki í skóla, býr annars staðar og hengur yfir skólafólkinu á Castel. Samt baktalar hann það og segir hvað hér sé ekkert að gera og hvað sumt fólkið sé óþroskað. Hann þóttist eiga svo mikla vini í Cannes, en annað hefur komið í ljós. Afhverju hengur hann ekki frekar með jafnöldrum sínum þar heldur en 18 ára Hollenskum hasshausum?

Þetta kvöld komumst við þó ekki hjá því að elda með honum inni í íbúð, hann bauð okkur nú reyndar upp á hvítvín. Og fór meira að segja úr skyrtunni til að olían “myndi ekki skvettast á skyrtuna”, það var greinilega betra að fá hana á bert skinnið...

En við slógumst þó fljótt í hóp með hinu fólkinu sem sat úti. DSCN0853Þau voru á leið á klúbb; Les Pêcheurs, sem var nearby. Við vorum strax orðnar smá í því;) Þessi klúbbur var rosalegur. Fimmtudagskvöld og hann var pakkaður. Risapleis, úti og inni, nokkrir barir, einn sá stærsti sem við höfðum séð! Fengum okkur drykki og dönsuðum og dönsuðum. Sober Ass-hole hékk utan í Hönnu, og þurfti víst geðveikt að “passa” hana. Hún náði þó að stinga hann af fljótt og varð hann massa pirraður! Enda var Ragna að dansa við David og Hanna vildi ekki einu sinni tala við hann. Skemmtileg saga að segja frá því samt að David þekkti einmitt merkið á bolnum hennar Rögnu. Custo Barcelona??
Uu yes, u know it?
Yes I have one myself.
Og þannig byrjaði dansinn. Þvílíkir taktar sem gaurinn hafði. Vatnsgreitt hár, þekkti merkjavöDSCN0860ru og hommadansmúv. Þvílíkur skápahommi. En staðurinn lokaði eitt og þá var haldið heim, allur hópurinn saman. Hanna og Anna voru frekar fullar og báðu einhvern gæja á vespu að skutla sér heim. Ragna var að labba með Ass-hole til að sleikja hann upp. Stelpurnar brunuðu framhjá og ekki kættist Ass-hole við það. Þegar þær komu heim voru hollensku strákarnir að reykja. Jónu. Frábært. Þvílíkir dónar. Þarna er eins og þið heyrið, engin gæsla! Ekkert mál fyrir hálvita að dópa að vild. (sjá mynd)
DSCN0862
Ragna kom og við fórum tvær í háttinn. Ekki leið á löngu áður en Ass-hole hringdi, geðveikt sorry. Hann vildi koma yfir til að ræða málin, leysa þetta issue. Hvaða issue? Láttu okkur vera, þá leysist þetta. En hann kom og það fyrsta sem Hanna öskraði á hann var:
“You just come here to fuck women! You just want a threesome with us! You Ass-hole! Everybody hates you, you know!”
Þá byrjaði vælið og Hanna að afsaka sig. Þetta var virkilega fyndið. Hann sat þarna í stól á móti rúmunum og Hanna sofnaði í miðri ræðunni hans. Þetta endaði allavega þannig að við knúsuðum hann. Fjúkk hann var farinn. Meðan dramanu stóð hjá okkur fékk Anna fyrsta flokks hasskennslu beint frá Amsterdam. Hún bankaði svo á hurðina um þrjú leytið og gisti. Hún fékk líka að taka gest með sér og við getum bara sagt að við séum fegnar því að hafa verið sofandi...

Neinei, Anna gerði ekkert ósiðferðislegt. Ragna vaknaði svo víst aftur, og þær DSCN0871Anna fóru á trúnó fram undir morgun! Föstudagurinn var rólegur. Ass-hole var bitur comme d’habitude. Og við héldum á ströndina
J

Föstudagskvöld, við með bjór í annarri og pizzu í hinni, meðan the Dutch ones rúlluðu upp jónu. David fór upp á herbergi í sturtu. Ekki frásögufærandi, nema hann kemur aftur niður í CUSTO BOLNUM SÍNUM. Við hröðuðum okkur inn í herbergi, snemma. Einn að reyna eitthvað gegnum Custo. Ass-hole bankaði fljótt upp á til að rukka okkur um áfengispeninginn. Hanna rétti honum 15 evrur og skellti DSCN0876hurðinni á nefið á honum. Við þurftum að vakna snemma til að pakka fyrir Chateauneuf de Grasse ferðina okkar.

Early rise og við settum í fimmta gír til að skila herberginu okkar hreinu og fínu. Við tókum lestina til Cannes, með Guðrúnu Lilju. En mamma hennar var einmitt með mömmu Rögnu í húsinu. Þangað mættum við fyrir hádegi og fengum dýrindis önd í hádegisverð. (Mynd: Ragna komin upp á þak...)

Vinkonurnar héldu til Cannes en við lillurnar lágum í leti. Sólin var reyndar ekki til staðar en við fundum okkur ýmislegt til viðurværis. Ping pong, Harry Potter ofl. Um kvöldið voru pantaðar hinar frægu Pizzu Joseph. Við lillurnar sóttum þær; merkileg ferð. Fyrsta bílferðin hennar Rögnu undir stýri í France og Hanna fékk að sjá torgið frá því í ferðinni sem farin var eftir 9.bekk. Þá nóttina fékk Hanna þriðju rasskinnina, við erum að tala um þrefalt moskítóbit sem klæjar as hell. Ragna var líka stungin, við höldum að þær hafi tekið sér bólfestu undir sænginni. SunnudagDSCN0886urinn var hinsvegar sólríkur og tanið var sko workað. Eftir glæsilegar veigar keyrðu mömmurnar okkur útá lestarstöð og við biðum saman eftir lestinni. En ekki kom hún. Eftir dálitla stund komumst við að því að það var verkfall! Sem er ekki mjög óalgengt að gerist í La France. Þær neyddust víst til að keyra okkur heim! Í leiðinni kíktu þær á nýja herbergið okkar.
Það er reyndar af lægri klassa en hitt, en er samt sem áður ágætt. Aðeins minna og ekkert eldhús. Hér eru engir maurar, en lyktin er hinsvegar verri. Hér fyrir neðan er samt sameiginlegt eldhús, sem er mjög gaman. Þá geta allir eldað saman og borðað í garðinum. Það gerðum við einmitt í gærkvöldi, eftir langan borðtennis dag með Önnu og Benjamin. En það er 25 ára Þjóðverji sem er með okkur í bekk. Hann er mjög fínn, sætur, næs og hér er barist um hylli hans;) Í matinn voru pylsur með tómat, sinnep og hráum, hoho. Ass-hole og hollensku vinirnir héngu í kring í allan dag og hann með þennan óborganlega bitra svip á grímunni. Benjamin er orðinn virkilega góður vinur okkar og ætlar að labba með okkur í skólann á morgun og meira að segja að elda með okkur! Hann kíkti á herbergið okkar meðan við þrjár vorum með slumber party að horfa á SATC;)

Well now it’s nighty night

et

à bientôt!!

Endilega kíkið á myndirnar, erum að berjast við að setja sem flestar inn.
Kærar kveðjur til allra í kuldanum.. hehe. Btw hér er glampandi sól ALLA DAGA
J

C’est tout
Hanna María et Ragna Sif


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Töff töff, soundar skemmtilegt, nema þegar ég er að lesa bloggið og það kemur eitthvað á frönsku sem ég skil ekki :P

Vona bara að frönskuslettunum fjölgi ekki þegar á líður :) 

Jökull (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 08:12

2 identicon

elska ykkur, vona að þið hafið það gott:) gaman að heyra um sæta Þjóðverja og bitra asshola!! lítur út fyrir að þið séuð að hafa það gott þarna úti, ég fylgist með ykkur, hafiði það gott og fariði varlega ástirnar mínar,

-kv Þórunn

Þórunn (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 12:45

3 Smámynd: Aðalheiður Dögg Finnsdóttir

hæ stelpur :) Þetta er allt svo spennandi..ég öfunda ykkur svakalega. Vonandi skemmtið ykkur meira eftir því sem líður og vonandi læriði e-ð ;)

Aðalheiður Dögg Finnsdóttir, 12.6.2007 kl. 13:19

4 identicon

Síðan hvenær voru mömmurnar ykkar þarna úti? Gosh... En hey, nett og skemmtilegt blogg... Líka gaman að lesa almennilega löng blogg :) Heiamdýrið þarna er greinilega nauðgari, sýnið honum mynd af mér, þá lætur hann sig kannski hverfa ;)

Vísir (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 18:05

5 identicon

skemmtilegt blogg, skemmtilegar myndir, öfund í hámarki....

en það er ferðalag komið á prjónana hjá okkur hjónunum, segi þér frá því í emaili Ragna, rosa spennó ferð:D

hættið nú að laða að ykkur ógeðslegu gaurana, og reynið að halda í þennan benjamin

sakna þín Ragna:*

Fanney (IP-tala skráð) 12.6.2007 kl. 19:06

6 identicon

Hey, væru þið til í að setja mynd af Benjamin í næsta bloggi...er hann svona sætur? Ég trúi því ekki..

Björg Magnea (IP-tala skráð) 13.6.2007 kl. 12:58

7 Smámynd: Hanna María og Ragna Sif

Email ja takk:) en eg svara eftir helgi. og tad komur vonandi blogg a morgun og svo eftir helgi; ef eitthvad merkilegt gerist... og juju vid eigum mynd af benna

Hanna María og Ragna Sif, 14.6.2007 kl. 10:17

8 identicon

hæj sætu stelpur skemmtilegt blogg og þessi ass hole er greinilega mjög skemmtilegur hehe;) en frábært að þið skemmtið ykkur svona vel ég öfunda ykkur ekkert smá mikið á meðan þið eruð ekkað að bara haha ógeðslega gaman í france þá er ég bara ekkað að skítast að keyra ekkern helvítis bíl:( en samt hanna mín hafðu nú samband við mig ekker tíman i miss u so much:´(

en samt skemmtið ykkur awsome vel:D:D:D:D

Brynja (IP-tala skráð) 14.6.2007 kl. 16:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hanna og Ragna í Frakklandi

Höfundur

Hanna María og Ragna Sif
Hanna María og Ragna Sif
Við erum tvær saman í Frakklandi að læra frönsku! Verðum í Antibes í 9 vikur og segjum frá dvölinni hér á þessari síðu

Nýjustu myndböndin

Kveðjur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 25.júlí (1)
  • Fokkin bíó
  • ...dscn1176
  • Nice
  • ...dscn1171

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband