18.6.2007 | 08:53
Le week-end
Halló halló;)
Jæja ný vika liðin og ekki lítið af skemmtilegum atburðum sem fylgdu henni. Virku dagarnir voru ansi rólegir, við vorum bara mjög einbeittar að skólanum og slökuðum á. Skólinn er aðeins farinn að taka meira á en það er búið að vera frekar mikið heimanám, sem við unnum samviskulega;) Á þriðjudaginn fórum við þrjár stöllurnar með Benjamin í Spar og versluðum í matinn. Um kvöldið var svo eldað dýrindis fahitas með Benna! Jana bættist í hópinn og Anna stakk af með henni. Við hin þrjú skelltum okkur upp í herbergi að horfa á Green Street Hooligans. Eftir það var bara farið snemma að sofa.
Á miðvikudaginn og fimmtudaginn var það bara ströndin, ping-pong og satc. Það verður nú samt að segjast að við erum ekki búnar að vera sem allra heppnastar með veðrið núna síðustu vikur en það er búið að vera frekar mikið skýjað. Á föstudaginn var meira að segja stormur, helli demba og brjálað rok. Þetta var meira að segja það slæmt að við festumst í skólanum í u.þ.b klukkutíma! En loks stytti upp og við tókum labbið niðrí Antibes og fengum okkur samloku sem Anna var búin að þrá alla vikuna og hafði varla talað um annað. Kvöldið var alveg hreint frábært. Já btw þá vorum við búnar að chilla mikið með Benna í vikunni og öll orðin góðir vinir, en þetta kvöld ákváðu sumir að taka vináttuna skrefinu lengra....dumdurumdum;) Já allavega þá löbbuðum við í Spar og keyptum okkur eina Passoa. Við byrjuðum uppá herbergi með Önnu og Benna en svo færðist fjörið niður í garðinn þar sem allir voru, m.a hinar íslensku stelpurnar sem við vorum
aðallega með. Um tólf leytið löbbuðum við svo öll niðrí bæ og klúbburinn Le Village varð fyrir valinu. Ágætur staður en þar var samt spiluð frekar leiðinleg tónlist, bara House en það var þó alveg hægt að dansa við hana. Já, dansinn var ekkert sparaður þetta kvöldið má segja. Hanna og MH stelpurnar ákváðu þó að ljúka kvöldinu frekar snemma eða um þrjú leytið og Ragna og Benni joinuðu líka. Anna var eftir með hollensku gaurunum og sænsku stelpunum. Það var frábært að geta loks sofið út á laugardaginn og nýttum við okkur það alveg í botn. Sváfum til tólf og lágum svo lengur í rúminu. Hanna náði ekki að vera full um kvöldið en hún hafði náð sér í einhverja ljóta hálsbólgu nokkrum dögum áður svo hún joinaði stelpurnar í að liggja upp í rúmi með satcJ Síðar um daginn löbbuðum við út í búð og keyptum og vín;)
Laugardagskvöldið var girls nights out. Við byrjuðum á svölunum hjá okkur en færðum okkur svo upp á næstu hæð til MH stelpnanna. Við urðum allar frekar hressar og ætluðum að kíkja niðrá strönd á einn bar en rötuðum ekki lengra en í einhvern leikjasal að spila þythokkíJ Eftir nokkra skemmtilega leiki löbbuðum við heim, margar hverjar berfættar og fórum svo í fótabað í sundlauginni. Sunnudagurinn er búinn að vera algjör letidagur líka þó við spöruðum ekki Hæhó jibbí jei lagið;) En það er náttla afmælisdagur mömmu hennar Hönnu í dag og já líka þjóðhátíðardagurinn. Skrýtið að vera svona langt í burtu á þessum merka degi. Manni finnst samt nokkurn veginn eins og allt standi í stað heima þegar maður fer svona lengi í burtu og pælir þar að leiðandi ekki mikið í því hvað er að ske heima. Við héldum jú líka ping-pong mót sem var mjög skemmtilegt;) Meðan Hanna var í sturtu og Ragna að afklæðast fyrir sína sturtu labbar Benni inn...heheh...frekar fyndið. En hún rétt náði að bjarga sér. Hann bað okkur að koma með sér út að borða og Ragna þorði ekki öðru en að svara játandi þó svo að við vorum búnar að plana að borða bara kellogs. Anna og Hanna voru þó ekki alveg nógu sáttar því þær voru ekki að nenna út, svo við breyttum planinu. Spurðum hann hvort hann væri ekki game í að elda annað kvöld. Hann virtist sáttur en greyið var búinn að dressa sig upp og samviskubitið nagaði okkur allt kvöldið.
Við héngum svo í tölvunni allt kvöldið hehe, og einmitt þegar Anna ætlar upp til sín heyrum við sírenur og crash! Við hlaupum út og kemur í ljós að löggan var að stoppa ungan mann. Hann liggur í götunni handjárnaður, við hliðiná beygluðum bílnum. Löggan hafði þá elt hann og klesst á hann til að stöðva bílinn. Rosaleg sjón, tveir löggubílar og menn sem bókstaflega rifu manninn úr jörðinni. En hér erum við tvær á leiðinni í háttinn. Ný skólavika framundan og guess what. Allur bekkurinn verður hækkaður upp í A1! Vei. Kannski maður kíki í Cannes í vikunni?
Endilega kommentið nóg og segið okkur slúður frá Íslandi!
Látum ekki líða langt að næsta bloggi!
BOY BOY
Ragna Sif og Hanna María
Um bloggið
Hanna og Ragna í Frakklandi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ Hanna og Ragna, gaman að heyra hvað það er gaman hjá ykkur, mér finnst nú pínu of mikið djamm á ykkur. Allt gott að frétta frá Íslandi voða gott veður núna hlýtt og varla vindur en lítill sól. Haldið áfram að vera svona duglegar að plogga, það er svo gaman að heyra frá ykkur. Íslenskar kveðjur til ykkar allra. ÁSTA
Ásta (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 17:09
Veistu, ég gæti líka alveg bloggað svona löng blogg um vinnuna mína og hvað er búið að gerast... En það sem væri hápunkturinn í því væri eflaust það að við fengum 2 bíla í staðinn fyrir einn í vinnuni... Og ég fór náttúrulega í giftingu til frænda míns sem býr í Miðborg París... frekar safe... Mamm'ans giftist baróni úti... og gerðist svo ekkja... veislan var reyndar ekki í parís heldur í perlunni... sem er fínt líka... Alltaf gaman að lesa bloggin, og hver datt í sleik við Benna? :P
Vísir (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 19:40
ég verð bara að vera smá ljóska! hvað í fjandanum er satc!!!!!?
ELín (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 23:32
sex and the city... duhhh!;)
ég vil fá email ASAP
;)
Fanney (IP-tala skráð) 18.6.2007 kl. 23:53
Það er nú bara sól hérna heima. Feis :P
Hvað varð um Sangriu-kvöldið?? Var orðin spennt að heyra frá því. Kannski ég grafi upp uppskrift af Sangriu og haldi kvöld hérna heima;)
Bára Dís (IP-tala skráð) 19.6.2007 kl. 13:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.