Síðasta vikan í Castel Arabel...

Við höfum verið busy þessa vikuna, en þar sem Valur fór í morgun er kominn tími á eitt sætt blogg!

Síðasta helgi var mjög fín. Á föstudaginn vorum við þau einu sem fórum snemma að sofa. Leið okkar lá nefnilega til Monaco á laugardagsmorgun. Það tók bara einn tíma að keyra þangað og byrjuðum á því að stoppa stutt. Casinoið var lokað þannig að við ákváðum að kíkja aftur við á leiðinni til baka. Við löbbuðum reyndar um höfnina og skoðuðum flottu snekkjurnar sem voru til sýnis. Við keyrðum síðan til Ítalíu og leið okkar lá ekki neitt. Við keyrðum fram hjá Ventimiglia og komumst að því að við vorum komin til San Remo. Sætur staður, flott strönd og skelltum okkur á nokkrar pizzur sem voru bara mjög ítalskar og góðar. Tókum walkið á ströndinni og héldum svo aftur til Monaco. Sá túr fór reyndar í fokk! Keyrðum 2x framhjá Monaco og eitthvað bull. En við fengum gott stæði við Casinoið og héldum inn. Tíu evrur í aðgangseyri. Húsið reyndist vera geðveikt. Eldgamalt og fancy. En við gömbluðum ekki neitt. Valur þorði ekki í Black Jack þar sem að hann leit eitthvað spes út. Við sirkúleruðum um Monaco til að finna Casino með póker. Fundum Sun Casino, en aftur þorði Valur ekki... Klukkan var orðin fimm og kominn tími á Juan les Pins!
a cote de la piscine

Ragna og Anna ætluðu að gera gott úr kvöldinu, en það kom í ljós að enginn var í stuði og við einar með tónlistina í botni með sushi í annarri og bjór í hinni. Valur og Hanna tóku hins vegar kvöldinu rólega. Þreytan sagði samt til sín hjá Rögnu um miðnætti og hún lagðist upp í. Anna spræk eins og endranær og hoppaði útí laug. Nokkur símtöl, nokkur sms og við sofnuðum.

Jetski á sunnudeginum. Miklar öldur og mikið gaman. Awesome að fá smá útrás og splasha öldurnar, fá saltið í smettið. Annars var vikan róleg, Hanna og Valur fóru aftur á jetski og til Cannes. Við spiluðum póker og margt fleira. Anna byrjuð að vinna fyrir hádegi, þannig að við erum ekki lengur með henni í tímum.

Á miðvikudaginn keyrðum við til Frejus til að fara í vatnsrennibrautagarð. Það tók klukkutíma að keyra og 23 evrur inn í garðinn. Það reyndist vera soldil peningasóun, því garðurinn var ekkert svo spes og vindurinn gerði það að verkum að það var of kalt til að vera að spóka sig um á bikiníinu í ísköldu vatni. En það var samt alveg heiðskírt, þannig að við sóluðum okkur á bekkjunum. Við hliðiná var GoKart braut. Bara 15 evrur. Við ákváðum að prófa, og sáum ekki eftir því! Við fengum góða útrás, sérstaklega Valur þar sem hann náði að hringa okkur 2x. Eftir það ákváðum við að stoppa í St Tropez til að skoða. En það var víst aðeins lengra en okkur grunaði og við sáum líka traffíkina til baka, sem var rosaleg. Við keyrðum í staðinn upp í fjall til að komast upp á hraðbrautina. Til að sleppa við umferðina! En. Þar hafði verið slys þannig að allir þurftu að snúa við. Eins svöng og við vorum þá stoppum við á pizzaskúr til að fá okkur slæsu. Sú pizza var ein sú besta sem við höfum smakkað. John, ástralskur fastakúnni útskýrði fyrir okkur að það væri ekki hægt að finna betri pizzur í margra km radíus! En við komumst heim heil á húfi og þá var klukkan orðin níu.
P1010097

Í gær var eldaður indverskur kjúklingur með niðurskornum kartöflum. Næsta skref í eldamennsku Rögnu og Önnu. Þetta heppnaðist mjög vel fyrir utan kjúllann sem var soldið hrár innst... En við erum samt sem áður snilldarkokkar! Passið ykkur!
Hanna og Valur áttu rómantíska kvöldstund á voða fancy veitingastað og Valur kom svo til að kveðja. Hanna á eftir að sakna þín Valur :’(

En! Að öðru. Nú er vendredi, helgin ahead. Og hvað skal gera? Jú, nú eru kaflaskil í dvöl okkar í France. Við flytjum til Dany fjölskyldunnar á morgun. Segjum skilið við Castel Arabel og fólkið. Lycée Horticole tekur við, og vinnan. Það er spennandi að sjá. En við ætlum að gleyma vinnu og skóla í kvöld, og sletta úr klaufunum;)

Segjum frá fjölskyldunni og helginni á mánudaginn:D

Bestu kveðjur
Hanna og Ragna


Ps. Hanna er líka komin með franskt kort og biður alla vinsamlegast um að hringja í sig;) 0033 0637 909609


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæ, skemmtilegt blogg...

 en ég sakna þín rosa mikið ragna:(

ég er í pulsuparty´hérna á nesinu hjá jölla, bara strákar og ég.

éger búin að horfa á msn samtöl við stelpur og youtube porn og heyra helling af sögum sem mig langaði ekkert að heyra... láttu heyra í þér ragna sif, ég sakna þín  ástin mín:*

btw, beta og björg beiluðu báðar á mig!!!:0 

Fanney (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 01:25

2 identicon

Þetta hljómar fáranlega gaman, væri svo mikið till í að fara til Monaco !

En já Fanney, ég bý ekki á nesinu. 

Jökull (IP-tala skráð) 1.7.2007 kl. 14:52

3 identicon

Djöfull var ég að frétta að þið væruð með blogsíðu...

Nenni samt ekki að lesa þetta núna, en geri það seinna. Farið svo að koma heim svo þið verðið ekki eins og niggarara. 

Jóakim (IP-tala skráð) 2.7.2007 kl. 21:42

4 identicon

Elsku Hanna, eg sakna þin lika en eg get ekki hringt i þetta numer, það er altaf a tali, hvernid skildi standa a þvi, eg held bara afram að reyna, I miss you mamma

asta (IP-tala skráð) 3.7.2007 kl. 19:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hanna og Ragna í Frakklandi

Höfundur

Hanna María og Ragna Sif
Hanna María og Ragna Sif
Við erum tvær saman í Frakklandi að læra frönsku! Verðum í Antibes í 9 vikur og segjum frá dvölinni hér á þessari síðu

Nýjustu myndböndin

Kveðjur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 25.júlí (1)
  • Fokkin bíó
  • ...dscn1176
  • Nice
  • ...dscn1171

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband