Klósettþrífingameistararnir 2007

Alors....nú er hafinn nýr kafli í Frakklandsferð Hönnu og Rögnu.

Föstudagskvöldið síðasta var fjör. Okkar seinasta kvöld á Residenceinu Castel Arabel. Fólkið á svæðinu var í stuði og fékk sér í glas. Við og Anna keyptum í matinn fyrir Fajitas. Við Anna skelltum okkur líka á bjórtilboð – 26 stk. Kronenbourg í gleri (25 cl) á 10 evrur. Það er sko ekki mikið! Hanna fékk sér nú samt bara smirnoff ice. Svo elduðum við frábært Fajitas. Reyndar ekki ótruflaðar. Við vorum ofsóttar af tveim geitungum sem endaði þannig að Anna smashaði þá með peysunni sinni. Eftir langan eltingaleik. Við sátum öll úti með mússíkina í botni. Hanna, Ragna og Benni tóku ping pong leik og síðan drykkjuleikinn góða, með Önnu. Merkjaleikurinn klikkar aldrei. Alohaaaaaaaaaaaa

Svo fór bjórinn að segja til sín. Hanna fór reyndar snemma að sofa. Hún fékk nóg. Ragn
DSCN1066a játaði fyrir Steve og Theresu að hún væri nörd. En þó ekki Star Wars fan. Eftir miklar útlistanir á tónlist fyrir Steve skreið hún uppí til Hönnu og rotaðist. Anna braut nærri upp hurðina stuttu síðar til að sýna okkur nýja besta vin sinn. Risa frosk! Hanna fríkaði út, og sagði að Anna skildi sko ekki koma með hann nálægt sér. Þá sneri hún sér að Rögnu, sem rankaði ekki við sér. Froskurinn lék við Rögnu og pissaði síðan í rúmið hennar Hönnu.

Early rise daginn eftir því við áttum von á fósturmömmunni okkar!! Við skildum við herbergið okkar klukkan ellefu um morguninn. Við biðum úti, og biðum. Klukkan orðin hálf tólf og mamma ekki komin að sækja okkur? En hún mætti þó á svæðið. Þá var henni sagt að sækja okkur hálf tólf. En það kom okkur soldið á óvart að hún er svört. Maðurinn hennar er Indverji og eiga þau tvö börn. Einn 25 ára son og 20 ára gamla stelpu, sem býr hjá þeim. Húsið er sætt og herbergið lítið. Við lúllum í koju og höfum einn lítinn lampa. Þann daginn löbbuðum við í center Antibes, sem er 20 mín frá húsinu, labbandi. Það var mjög fínt. Hanna keypti mjög fallega afmælisgjöf handa mömmu sinni. Alvöru mömmu sinni, ekki fósturmömmu. Síðan féllum við í freistni þegar við sáum nammibarinn. Við slefandi með pokann í annarri og skófluna í hinni, tökum við eftir gaurum við hliðiná okkur að taka mynd.

Ragna: “Hanna, þeir eru sko að taka mynd af okkur, ég sver það”
Hanna: “Woddafokk?”
Gaur1: “Have you seen this?” *bendir á rassinn hennar Hönnu*
Ragna: “What??”
Gaur2: “This is the best bum I’ve ever seen”
Gaur1: “Please let us take a picture!”
Hanna: “Are you crazy?”
*Við náum ekki andanum fyrir hlátri*

Gaur2: “Turn around so we can get a picture with your bum”
Ragna og Hanna: “Hahahaha... Noooo!”
Það kom í ljós að þetta voru 3 fullir gaurar frá Englandi. Síðan héldum við áfram hlæjandi að tína nammið í pokann. Og afgreiðslukonan segir: Ils vous draguent!!
(Þeir hözzla ykkur) haha

 

Við héldum heim að borða. Við spjölluðum heilmikið við mömmu, sem var hin besta frönskuæfing! En við fórum snemma að sofa því við áttum okkar fyrsta dag í vinnunni daginn eftir...

Klukkan níu vorum við mættar upp í skóla. Þá var það reyndar þannig að við hefðum ekki þurft að mæta fyrr en klukkan tíu. En, þetta reddaðist, við fengum vinnu túr um skólann með yfirmanninum! Og liðið okkar byrjaði að vinna klukkan tíu. Þetta var ekki svo slæmt, frekar tjillað. Frír matur í hádeginu og við vorum búin klukkan hálf þrjú. Við steinsofnuðum eftir vinnu og héldum til Castel Arabel um kvöldið til að heilsa upp á Önnu okkar og Maríu Klöru og Stefaníu. Þær komu á sunnudaginn og verða í einn og hálfan mánuð. Við þurftum að labba heim, sem tók 40 mín. Þetta var frekar spúkí. Tveir bílar stoppuðu. Enda vorum við að labba næstum á hraðbrautinni:S En þegar við héldum að við værum komnar heim heilar á höldnu þá stendur gaur í innkeyrslunni. Með typpið úti. Ok, hann er bara að pissa, þetta er allt í lagi. En nei. Hann starir á okkur með psycho augum og flagsar tillanum í áttina til okkar. Við rétt náðum að sveigja okkur framhjá þessum geðsjúklingi.

Vinnan á mánudagsmorgninum reyndist þó ekki eins tjilluð og við héldum. Allan morg
uninn frá átta til hálf eitt, vorum við að þrífa klósettin. Já, bara klósett. En við fengum okkur hádegismat, sem er fínt, því þá þurfum við ekki að eyða pening í mat. Og alltaf á mánudögum er frí í skólanum, þannig að við vorum lausar eftir hádegi! Vúhú. Við fórum á ströndina og tönuðum helling. Syntum með Andreu (ítalskur strákur) Eða maður? Hann er 26, á svipuðum aldri og hinir sem eru að vinna með okkur. Við héngum á ströndinni með krökkunum, en fórum reyndar heim fyrir fimm. Til að fara í Carrefour. Okkur vantaði passamynd til að við getum fengið frían buspassa. Við keyptum sitt lítið af hverju og löbbuðum til baka. Kvöldið fór í naglalakk og sex and the city. Planið var að hitta hina WEPana, en þau fóru svo seint út, þannig að við beiluðum.

Enda var vinnan á þriðjudagsmorgni pain. Aftur sömu klósettin. Hanna fór reyndar með yfirmanninum í apótekið. Því daginn áður fékk hún þessa risa risa blöðru á tánna. Og við erum sko að tala um huge. Það átti víst að vera útaf hreinsiefnunum sem við vorum að nota í vinnunni. Apótekarinn sprengdi blöðruna og vatnið flæddi um allt. Hún fékk plástur og hélt áfram að vinna. Við fengum þó líka að tæma allar ruslatunnurnar í öllum herbergjunum. Frábært. En þennan daginn var líka skóli eftir hádegi. Góðu fréttirnar eru þær að við erum komnar í B1 !!!! Við erum bara 7 í bekk og dagurinn var rólegur, en kennarinn talar þó talsvert hraðar heldur en hinir!

Og í dag. Við keyptum okkur líkamsræktarkort! Við ætlum að vera helköttaðar í ágúst. Í gærkvöldi heimsóttum við Önnu og co á Castel Arabel. Við tókum lestina rétt fyrir tíu og Ragna endaði á því að fá sér nokkur rósavínsglös. Það var heavy stemmari, borðtennismót og allir í gír. Hanna var orðin frekar þreytt rétt eftir miðnætti svo hún náði að dobbla far frá einni breskri sem var á bíl. Og við vorum komnar heim um eitt.

Endilega kommentið eins og þið viljið. Við þráum að heyra í ykkur.

Au revoir
Ragna og Hanna


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Komment...

safe?

Þið gætuð neyðst til að blogga oftar... ég hef ekki margt annað að gera svosum...

vá hvað ég væri að súpa Champagne þarna úti...

Vísir (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 17:58

2 identicon

STELPUR EG ER AÐ KAFNA MIG LANGAR SVO MIKIÐ AÐ KOMA TIL YKKAR! Hversu gaman er hjá ykkur??? En Hanna mín ætlaðir þú ekki að hætta að reykja!!!  En það er bara allt gott að frétta heima. Erum að fara til Köben á miðvikudaginn til sunnud og svo faum við íbúðina um leið og við komum heim En eg sakna þin fáránlega mikið Hanna mín og ég get sko ekki beðið eftir að bjóða þer í mat um leið og þu kemur heim í nýju íbúðina. Bara við tvær og spjalla útí eitt!!!! Hvernig líst þer á það? Hafiði það gott elskurnar mínar og fáið líka smá tan með heim í krukku handa mér og strandarsand með

ELín (IP-tala skráð) 5.7.2007 kl. 20:00

3 identicon

Þið eruð ruglaðar. Líkamsræktarkort í France!! Það er allavega víst að ég kemst aldrei með tærnar þar sem þið hafið hælana í þessum málum :O

Gott að heyra að vinnan er skemmtileg. Skemmtið ykkur meira og tanið ;)

Bára Dís (IP-tala skráð) 10.7.2007 kl. 01:26

4 identicon

Er þetta kúkur í rúminu? :O ojjj

Björg Magnea (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 13:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Hanna og Ragna í Frakklandi

Höfundur

Hanna María og Ragna Sif
Hanna María og Ragna Sif
Við erum tvær saman í Frakklandi að læra frönsku! Verðum í Antibes í 9 vikur og segjum frá dvölinni hér á þessari síðu

Nýjustu myndböndin

Kveðjur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 25.júlí (1)
  • Fokkin bíó
  • ...dscn1176
  • Nice
  • ...dscn1171

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband