11.7.2007 | 16:12
Einu sinni voru tvær öskubuskur...
Sæll öllsömul :)
Helgin var viðburðarík hjá okkur hnátunum. Það var löngu planað að fara að djamma á föstudaginn og þess vegna fór föstudagurinn sjálfur í smá undirbúning fyrir kvöldið;) Eftir erfiðan vinnudag neyddumst við til að fara heim og sleppa skólanum, hvað er einn dagur í frí af 45...hehehe. Þá héldum við heim og beint út í sólbað. Það var samt varla hægt að liggja úti með enga sundlaug til að kæla sig því hitinn var gígantískur...við erum að tala um að minnsta kosti 40 gráður. Eftir sveitt sólbað förum við og tókum eina sveitta æfingu. Þar var nú rassinn heldur betur workaður. Fyndið að segja frá því að eftir æfinguna hringir enginn annar en fyrrverandi kennarinn okkar í Rögnu, en hún hafði gefum honum númerið sitt nokkrum dögum áður þar sem hann bað um það svo við gætum djammað saman um helgina. Hhhmmm, frekar dularfullt. Að loknum kvöldmat héldum við á Castel, sáttar með þrjár vínflöskur í höndunum. Þar var mikið líf og fjör. Allir á svæðinu, já meira að segja Fabien. Við og Anna ákváðum að taka smá rölt um bæinn og kíkja á klúbba eftir góða drykkjustund á Castel. Þegar við vorum að kveðja lýðinn skellir Fabien einum blautum á Rögnu. Þetta kom alveg flatt upp á hana, en Hanna var nú ekki hissa, við vorum meira segja búnar að gera veðmál. Hanna veðjaði að hann myndi pottþétt reyna eitthvað og ef það yrði rétt þá þyrfti Ragna að kalla hana gáfaðasta en ef ekki þá heimskasta. Þannig að Hanna er búin að vera rosalega gáfuð síðustu daga. Hehehehe En eftir kossinn hljóp Ragna í burtu í algjöru sjokki. Klúbbaröltið okkar fór nú ekki á sem bestan veg þar sem að við komust hvergi inn vegna þess að við vorum of fullar, bull og vitleysa;) Eftir smá rölt um í bænum héldum við frekar snemma heim.
Laugardagurinn var nú ekki síðri, loks kom að langþráðu fríi. Við vöknuðum um ellefu og tökum lestina til Nice. Þar var planið að versla og versla. Við urðum nú alldeilis heppnar því það eru greinilega líka júlí útsölur í Frakklandi. Við náðum örugglega að versla svona tíu kíló sem er kannski ekki það allra besta fyrir heimleiðina. Shoppingið átti sér stað til 8 og eftir það förum við í bíó á Shrek le troisieme, já á frönsku. Ef þetta hefði ekki verið barnamynd þar sem allt skýrist með myndinni hefðum við gjörsamlega ekki skilið neitt. Okkur var boðið að fara á hátíð í Nice en við afþökkum og fórum heim að lúlla. Aðallega vegna þess að sunnudagurinn var vinnudagur. Níu klukkutímar af klósett- og herbergisþrifum. Það sem það tekur á bakið að búa um rúm og sópa. Um kvöldið voru krakkarnir að fara á ströndina en við vorum uppgefnar og eyddum kvöldinu upp í rúmi.
Þegar við vöknuðum á mánudagsmorgninum vorum við ekki að trúa að við værum að fara aftur í vinnuna. En við hugguðum okkur við það að við vorum lausar eftir hádegi. Við skelltum okkur í Antibes, á netkaffi og fleira. Svo klikkaði það ekki að við jogguðum í ræktina. Fórum í stretching tíma og erum með massa harðsperrur. Að sjálfsögðu fórum við á Castel um kvöldið með eina hvítvínsflösku. Hún reyndist vera ódrekkanleg, en einhvernveginn tókst samt Rögnu að vera létt á því. Mánudagskvöld og allir voru í banastuði. Við kynntumst nýju fólki og kvöldið kom betur út en von var á. Little surprises here and there, en ég meina, bara til að krydda lífið.
Hvað skyldi svo vera framundan? Klára vinnuvikuna, kveðja Benjamín næstu helgi, Stefanía á afmæli á fimmtudaginn og svo koma m&p næsta laugardag. Við erum að vona að við getum unnið á laugardaginn til að fá frí á sunnudeginum til að geta skroppið í heimsókn og legið í taninu. Annars styttist alltaf í heimkomuna okkar, bara þrjár og hálf vika eftir. Ekki það samt að okkur langi heim;)
Jæja takk fyrir lesninguna góðir hálsar! Það birtist nýtt blogg von bráðar.
Bisous
Ragna et Hanna
Um bloggið
Hanna og Ragna í Frakklandi
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (8.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku:
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku:
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
bíddu.. afhverju er gaurinn að lyfta bolnum sínum upp? hann er nú ekkert það flottur..
saknykkar!:*
Fanney (IP-tala skráð) 15.7.2007 kl. 12:41
Fanney, tan er meira í metun en vöðvar þarna úti..
Björg Magnea (IP-tala skráð) 23.7.2007 kl. 14:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.