Færsluflokkur: Ferðalög

Djöfull náðum við ykkur

Eins og þið flest vitið þá vorum við að fokka í ykkur. Það var ekkert vika eftir af dvölinni. Við erum komnar heim. Það er búið að vera planið í tvær vikur, haha.

Við nennum ekki að tíunda það hér afhverju við styttum þetta um viku. En það má segja að svipirnir á Hjalta og Val hafi verið nógu stór ástæða. Óborganlegt.

En við þökkum lesendum kærlega fyrir okkur. Þessi síða gefur hér með upp laupana.

Ferðin var allavega í allflesta staði frábær!! Í heild sinni var hún yndisleg og þessu munum við Hanna búa að alla ævi :D

Lifið heil

Ragna Sif og Hanna María

25.júlí (1)


Nei, við erum sko ræstitæknar!

DSCN1181
DSCN1182
DSCN1183
DSCN1184

Hey

Kominn tími á nýja færslu. Við vitum að þið eruð öll að deyja, ykkur langar svo að heyra meira frá okkur. Hitinn hérna eykst með hverri mínútunni. Það er varla hægt að sofa á nóttunni, sérstaklega þar sem fjölskyldan okkar hefur aldrei heyrt minnst á loftræstingu.

 

Síðasta miðvikudag fórum við á netið og tjilluðum tvær, eftir erfiðan vinnudag.

Vaffanculo

Ma come e bello far l amore da trieste in giu.

 

Við erum hérna ekki bara til að læra frönsku, ó nei. Ítalska, þýska, enska, við lærum þetta allt.

Drifkrafturinn var rosalegur á fimmtudaginn. Við tókum tvöfalda
21.júlí (1) púlæfingu, abdo fessier og aerobic. En um helgina var það allt önnur ella. Við og Anna fórum í húsið í Grasse og slökuðum á. Syntum í lauginni og tönuðum. Ragna er btw orðin það brún að einn animateurinn spurði, þegar við sögðum að við færum heim eftir rúma viku, hvort að hún væri að fara aftur heim til Spánar. Önnu er líka frequently ruglað við Ítalina. En það er nú ekkert efast um það að Hanna sé Íslendingur.

Sunnudagurinn fór samt í vinnu, sem leið ekki beint hratt. Og enn og aftur var Nice heimsótt, í gær. Við náðum að versla eitthvað aðeins meira, sem er enn verra fyrir yfirvigtina. En við tökum áhættur. Okkur finnst ekkert skemmtilegra en að fara í lestina án þess að borga.

Um kvöldið löbbuðum við í hringi í tæpan klukkutíma til að finna bíóhús með enskum myndum. Við vorum alltaf að fá mismunandi leiðarvísa. Frakkar vita greinilega ekkert hvar hægt er að sjá ódöbbaðar myndir. Svo gátum við ekki keypt miða fyrr en fimm mínútum fyrir sýningu. Það var of erfitt fyrir þá. En við fórum á Harry Potter. Hún var bara svona líka góð. Reyndar missti Anna af næstum helming myndarinnar, hún vildi frekar hvíla augun....

Núna eru bara 10 dagar í okkur! Aðeins ein helgi eftir. Við erum að pæla í að eyða henni í Cannes og sletta aðeins úr klaufunum. Það er líka víst eitthvað partý á Castel, þannig að kannski maður kíki þangað.

Síðasta og skemmtilegasta bloggið kemur í næstu viku!!!

Love

Hanna og Ragna


Sur feu?

Salut nos amis!

Síðasta vika var frekar tranquil hjá okkur. Föstudeginum var samt eytt í ræktinni og á Castel um kvöldið. Benjamín var að kveðja þannig að við joinuðum fólkið. Ragna keypti sér rósavínsflösku en Hanna var edrú til að passa upp á Rögnu. Anna var líka róleg og fór bara snemma að sofa. (Enda var hún í annarlegu ástandi daginn áður og þurfti the night off). Flestir voru sur feu en enginn toppaði Rögnu. Það var leiðinlegt að þurfa að kveðja Benna, það er virkilega desert án hans. Það er samt ótrúlegt að hugsa útí það að hann hafi verið hér í sex vikur. Því við komum sama dag og hann. Og það þýðir að við erum búnar að vera hérna í SIX semaines. Incroyable. Est-ce que nous vous manquez? Must be.

Hanna reyndi að draga Rögnu heim með síðustu lestinni en það tókst ekki alveg þannig að Ragna plataði Fabien til að skutla okkur. Það var frekar þægilegt að fá far heim upp að dyrum. Það gerist nú ekki oft. Laugardagurinn var nul. Vinna frá tíu til hálf sex. Við náðum aftur að plata Fabien til að fara með okkur til Cannes til að horfa á flugeldana í tilefni af Bastilludeginum. Vive la liberté!
 Umferðin var reyndar frekar þung. Embouteillage de merde!  Flugeldarnir voru reyndar super , geðveikt flottir og skemmtileg tónlist undir. Fáránlega mikið af fólki á Croisettunni og ströndinni. Þeir voru í hálftíma og við röltum bara um eftir það. Settumst aðeins niður og fengum okkur ís. Fabien skutlaði okkur heim um miðnætti og við fórum að lúlla.

Sunnudagurinn var kóózý. Við tókum lestina til Chateauneuf de Grasse til að heilsa upp á mommz and pappz. Þau tóku fagnandi á móti okkur á la gare og við keyptum í matinn, sólarolíu, nammi og kók. Svo var legið við bakkann hele dagen. So nice. Þau komu færandi hendi með Egils sódavatn og kúlusúkk. Þvílíkt himnaríki. En lestin var tekin til baka um kvöldið, því heil vinnuvika var framundan.

En, mánudagurinn fór í shopping í Cannes. Þvílíkur hiti og sviti. En við náðum að tæma budduna og meira til. Þið fáið að sjá afraksturinn þegar við snúum aftur.

Pókerkvöld var í gær og Ragna tók Justin, Önnu og Hönnu í rassgatið. Andrea og Hanna, hinar nýju íslensku stelpurnar mættu á sunnudaginn helsáttar.

Við megum ekki vera að þessu. Við þurfum að vinna. Klósettin bíða.

Bless

Hanna og Ragna


Einu sinni voru tvær öskubuskur...

Sæll öllsömul :)

Helgin var viðburðarík hjá okkur hnátunum. Það var löngu planað að fara að djamma á föstudaginn og þess vegna fór föstudagurinn sjálfur í smá undirbúning fyrir kvöldið;) Eftir erfiðan vinnudag neyddumst við til að fara heim og sleppa skólanum, hvað er einn dagur í frí af 45...hehehe. Þá héldum við heim og beint út í sólbað. Það var samt varla hægt að liggja úti með enga sundlaug til að kæla sig því hitinn var gígantískur...við erum að tala um að minnsta kosti 40 gráður. Eftir sveitt sólbað förum við og tókum eina sveitta æfingu. Þar var nú rassinn heldur betur workaður. Fyndið að segja frá því að eftir æfinguna hringir enginn annar en fyrrverandi kennarinn okkar í Rögnu, en hún hafði gefum honum númerið sitt nokkrum dögum áður þar sem hann bað um það svo við gætum djammað saman um helgina. Hhhmmm, frekar dularfullt.   Að loknum kvöldmat héldum við á Castel, sáttar með þrjár vínflöskur í höndunum. Þar var mikið líf og fjör. Allir á svæðinu, já meira að segja Fabien. Við og Anna ákváðum að taka smá rölt um bæinn og kíkja á klúbba eftir góða drykkjustund á Castel. Þegar við vorum að kveðja lýðinn skellir Fabien einum blautum á Rögnu. Þetta kom alveg flatt upp á hana, en Hanna var nú ekki hissa, við vorum meira segja búnar að gera veðmál. Hanna veðjaði að hann myndi pottþétt reyna eitthvað og ef það yrði rétt þá þyrfti Ragna að kalla hana gáfaðasta en ef ekki þá heimskasta. Þannig að Hanna er búin að vera rosalega gáfuð síðustu daga. Hehehehe En eftir kossinn hljóp Ragna í burtu í algjöru sjokki. Klúbbaröltið okkar fór nú ekki á sem bestan veg þar sem að við komust hvergi inn vegna þess að við vorum of fullar, bull og vitleysa;) Eftir smá rölt um í bænum héldum við frekar snemma heim.

Laugardagurinn var nú ekki síðri, loks kom að langþráðu fríi. Við vöknuðum um ellefu og tökum lestina til Nice. Þar var planið að versla og versla. Við urðum nú alldeilis heppnar því það eru greinilega líka júlí útsölur í Frakklandi. Við náðum örugglega að versla svona tíu kíló sem er kannski ekki það allra besta fyrir heimleiðina. Shoppingið átti sér stað til 8 og eftir það förum við í bíó á Shrek le troisieme, já á frönsku. Ef þetta hefði ekki verið barnamynd þar sem allt skýrist með myndinni hefðum við gjörsamlega ekki skilið neitt. Okkur var boðið að fara á hátíð í Nice en við afþökkum og fórum heim að lúlla. Aðallega vegna þess að sunnudagurinn var vinnudagur. Níu klukkutímar af klósett- og herbergisþrifum. Það sem það tekur á bakið að búa um rúm og sópa. Um kvöldið voru krakkarnir að fara á ströndina en við vorum uppgefnar og eyddum kvöldinu upp í rúmi.

Þegar við vöknuðum á mánudagsmorgninum vorum við ekki að trúa að við værum að fara aftur í vinnuna. En við hugguðum okkur við það að við vorum lausar eftir hádegi. Við skelltum okkur í Antibes, á netkaffi og fleira. Svo klikkaði það ekki að við jogguðum í ræktina. Fórum í stretching tíma og erum með massa9.juli (8) harðsperrur. Að sjálfsögðu fórum við á Castel um kvöldið með eina hvítvínsflösku. Hún reyndist vera ódrekkanleg, en einhvernveginn tókst samt Rögnu að vera létt á því. Mánudagskvöld og allir voru í banastuði. Við kynntumst nýju fólki og kvöldið kom betur út en von var á. Little surprises here and there, en ég meina, bara til að krydda lífið.

Hvað skyldi svo vera framundan? Klára vinnuvikuna, kveðja Benjamín næstu helgi, Stefanía á afmæli á fimmtudaginn og svo koma m&p næsta laugardag. Við erum að vona að við getum unnið á laugardaginn til að fá frí á sunnudeginum til að geta skroppið í heimsókn og legið í taninu. Annars styttist alltaf í heimkomuna okkar, bara þrjár og hálf vika eftir. Ekki það samt að okkur langi heim;)

Jæja takk fyrir lesninguna góðir hálsar! Það birtist nýtt blogg von bráðar.

Bisous
Ragna et Hanna


Klósettþrífingameistararnir 2007

Alors....nú er hafinn nýr kafli í Frakklandsferð Hönnu og Rögnu.

Föstudagskvöldið síðasta var fjör. Okkar seinasta kvöld á Residenceinu Castel Arabel. Fólkið á svæðinu var í stuði og fékk sér í glas. Við og Anna keyptum í matinn fyrir Fajitas. Við Anna skelltum okkur líka á bjórtilboð – 26 stk. Kronenbourg í gleri (25 cl) á 10 evrur. Það er sko ekki mikið! Hanna fékk sér nú samt bara smirnoff ice. Svo elduðum við frábært Fajitas. Reyndar ekki ótruflaðar. Við vorum ofsóttar af tveim geitungum sem endaði þannig að Anna smashaði þá með peysunni sinni. Eftir langan eltingaleik. Við sátum öll úti með mússíkina í botni. Hanna, Ragna og Benni tóku ping pong leik og síðan drykkjuleikinn góða, með Önnu. Merkjaleikurinn klikkar aldrei. Alohaaaaaaaaaaaa

Svo fór bjórinn að segja til sín. Hanna fór reyndar snemma að sofa. Hún fékk nóg. Ragn
DSCN1066a játaði fyrir Steve og Theresu að hún væri nörd. En þó ekki Star Wars fan. Eftir miklar útlistanir á tónlist fyrir Steve skreið hún uppí til Hönnu og rotaðist. Anna braut nærri upp hurðina stuttu síðar til að sýna okkur nýja besta vin sinn. Risa frosk! Hanna fríkaði út, og sagði að Anna skildi sko ekki koma með hann nálægt sér. Þá sneri hún sér að Rögnu, sem rankaði ekki við sér. Froskurinn lék við Rögnu og pissaði síðan í rúmið hennar Hönnu.

Early rise daginn eftir því við áttum von á fósturmömmunni okkar!! Við skildum við herbergið okkar klukkan ellefu um morguninn. Við biðum úti, og biðum. Klukkan orðin hálf tólf og mamma ekki komin að sækja okkur? En hún mætti þó á svæðið. Þá var henni sagt að sækja okkur hálf tólf. En það kom okkur soldið á óvart að hún er svört. Maðurinn hennar er Indverji og eiga þau tvö börn. Einn 25 ára son og 20 ára gamla stelpu, sem býr hjá þeim. Húsið er sætt og herbergið lítið. Við lúllum í koju og höfum einn lítinn lampa. Þann daginn löbbuðum við í center Antibes, sem er 20 mín frá húsinu, labbandi. Það var mjög fínt. Hanna keypti mjög fallega afmælisgjöf handa mömmu sinni. Alvöru mömmu sinni, ekki fósturmömmu. Síðan féllum við í freistni þegar við sáum nammibarinn. Við slefandi með pokann í annarri og skófluna í hinni, tökum við eftir gaurum við hliðiná okkur að taka mynd.

Ragna: “Hanna, þeir eru sko að taka mynd af okkur, ég sver það”
Hanna: “Woddafokk?”
Gaur1: “Have you seen this?” *bendir á rassinn hennar Hönnu*
Ragna: “What??”
Gaur2: “This is the best bum I’ve ever seen”
Gaur1: “Please let us take a picture!”
Hanna: “Are you crazy?”
*Við náum ekki andanum fyrir hlátri*

Gaur2: “Turn around so we can get a picture with your bum”
Ragna og Hanna: “Hahahaha... Noooo!”
Það kom í ljós að þetta voru 3 fullir gaurar frá Englandi. Síðan héldum við áfram hlæjandi að tína nammið í pokann. Og afgreiðslukonan segir: Ils vous draguent!!
(Þeir hözzla ykkur) haha

 

Við héldum heim að borða. Við spjölluðum heilmikið við mömmu, sem var hin besta frönskuæfing! En við fórum snemma að sofa því við áttum okkar fyrsta dag í vinnunni daginn eftir...

Klukkan níu vorum við mættar upp í skóla. Þá var það reyndar þannig að við hefðum ekki þurft að mæta fyrr en klukkan tíu. En, þetta reddaðist, við fengum vinnu túr um skólann með yfirmanninum! Og liðið okkar byrjaði að vinna klukkan tíu. Þetta var ekki svo slæmt, frekar tjillað. Frír matur í hádeginu og við vorum búin klukkan hálf þrjú. Við steinsofnuðum eftir vinnu og héldum til Castel Arabel um kvöldið til að heilsa upp á Önnu okkar og Maríu Klöru og Stefaníu. Þær komu á sunnudaginn og verða í einn og hálfan mánuð. Við þurftum að labba heim, sem tók 40 mín. Þetta var frekar spúkí. Tveir bílar stoppuðu. Enda vorum við að labba næstum á hraðbrautinni:S En þegar við héldum að við værum komnar heim heilar á höldnu þá stendur gaur í innkeyrslunni. Með typpið úti. Ok, hann er bara að pissa, þetta er allt í lagi. En nei. Hann starir á okkur með psycho augum og flagsar tillanum í áttina til okkar. Við rétt náðum að sveigja okkur framhjá þessum geðsjúklingi.

Vinnan á mánudagsmorgninum reyndist þó ekki eins tjilluð og við héldum. Allan morg
uninn frá átta til hálf eitt, vorum við að þrífa klósettin. Já, bara klósett. En við fengum okkur hádegismat, sem er fínt, því þá þurfum við ekki að eyða pening í mat. Og alltaf á mánudögum er frí í skólanum, þannig að við vorum lausar eftir hádegi! Vúhú. Við fórum á ströndina og tönuðum helling. Syntum með Andreu (ítalskur strákur) Eða maður? Hann er 26, á svipuðum aldri og hinir sem eru að vinna með okkur. Við héngum á ströndinni með krökkunum, en fórum reyndar heim fyrir fimm. Til að fara í Carrefour. Okkur vantaði passamynd til að við getum fengið frían buspassa. Við keyptum sitt lítið af hverju og löbbuðum til baka. Kvöldið fór í naglalakk og sex and the city. Planið var að hitta hina WEPana, en þau fóru svo seint út, þannig að við beiluðum.

Enda var vinnan á þriðjudagsmorgni pain. Aftur sömu klósettin. Hanna fór reyndar með yfirmanninum í apótekið. Því daginn áður fékk hún þessa risa risa blöðru á tánna. Og við erum sko að tala um huge. Það átti víst að vera útaf hreinsiefnunum sem við vorum að nota í vinnunni. Apótekarinn sprengdi blöðruna og vatnið flæddi um allt. Hún fékk plástur og hélt áfram að vinna. Við fengum þó líka að tæma allar ruslatunnurnar í öllum herbergjunum. Frábært. En þennan daginn var líka skóli eftir hádegi. Góðu fréttirnar eru þær að við erum komnar í B1 !!!! Við erum bara 7 í bekk og dagurinn var rólegur, en kennarinn talar þó talsvert hraðar heldur en hinir!

Og í dag. Við keyptum okkur líkamsræktarkort! Við ætlum að vera helköttaðar í ágúst. Í gærkvöldi heimsóttum við Önnu og co á Castel Arabel. Við tókum lestina rétt fyrir tíu og Ragna endaði á því að fá sér nokkur rósavínsglös. Það var heavy stemmari, borðtennismót og allir í gír. Hanna var orðin frekar þreytt rétt eftir miðnætti svo hún náði að dobbla far frá einni breskri sem var á bíl. Og við vorum komnar heim um eitt.

Endilega kommentið eins og þið viljið. Við þráum að heyra í ykkur.

Au revoir
Ragna og Hanna


Síðasta vikan í Castel Arabel...

Við höfum verið busy þessa vikuna, en þar sem Valur fór í morgun er kominn tími á eitt sætt blogg!

Síðasta helgi var mjög fín. Á föstudaginn vorum við þau einu sem fórum snemma að sofa. Leið okkar lá nefnilega til Monaco á laugardagsmorgun. Það tók bara einn tíma að keyra þangað og byrjuðum á því að stoppa stutt. Casinoið var lokað þannig að við ákváðum að kíkja aftur við á leiðinni til baka. Við löbbuðum reyndar um höfnina og skoðuðum flottu snekkjurnar sem voru til sýnis. Við keyrðum síðan til Ítalíu og leið okkar lá ekki neitt. Við keyrðum fram hjá Ventimiglia og komumst að því að við vorum komin til San Remo. Sætur staður, flott strönd og skelltum okkur á nokkrar pizzur sem voru bara mjög ítalskar og góðar. Tókum walkið á ströndinni og héldum svo aftur til Monaco. Sá túr fór reyndar í fokk! Keyrðum 2x framhjá Monaco og eitthvað bull. En við fengum gott stæði við Casinoið og héldum inn. Tíu evrur í aðgangseyri. Húsið reyndist vera geðveikt. Eldgamalt og fancy. En við gömbluðum ekki neitt. Valur þorði ekki í Black Jack þar sem að hann leit eitthvað spes út. Við sirkúleruðum um Monaco til að finna Casino með póker. Fundum Sun Casino, en aftur þorði Valur ekki... Klukkan var orðin fimm og kominn tími á Juan les Pins!
a cote de la piscine

Ragna og Anna ætluðu að gera gott úr kvöldinu, en það kom í ljós að enginn var í stuði og við einar með tónlistina í botni með sushi í annarri og bjór í hinni. Valur og Hanna tóku hins vegar kvöldinu rólega. Þreytan sagði samt til sín hjá Rögnu um miðnætti og hún lagðist upp í. Anna spræk eins og endranær og hoppaði útí laug. Nokkur símtöl, nokkur sms og við sofnuðum.

Jetski á sunnudeginum. Miklar öldur og mikið gaman. Awesome að fá smá útrás og splasha öldurnar, fá saltið í smettið. Annars var vikan róleg, Hanna og Valur fóru aftur á jetski og til Cannes. Við spiluðum póker og margt fleira. Anna byrjuð að vinna fyrir hádegi, þannig að við erum ekki lengur með henni í tímum.

Á miðvikudaginn keyrðum við til Frejus til að fara í vatnsrennibrautagarð. Það tók klukkutíma að keyra og 23 evrur inn í garðinn. Það reyndist vera soldil peningasóun, því garðurinn var ekkert svo spes og vindurinn gerði það að verkum að það var of kalt til að vera að spóka sig um á bikiníinu í ísköldu vatni. En það var samt alveg heiðskírt, þannig að við sóluðum okkur á bekkjunum. Við hliðiná var GoKart braut. Bara 15 evrur. Við ákváðum að prófa, og sáum ekki eftir því! Við fengum góða útrás, sérstaklega Valur þar sem hann náði að hringa okkur 2x. Eftir það ákváðum við að stoppa í St Tropez til að skoða. En það var víst aðeins lengra en okkur grunaði og við sáum líka traffíkina til baka, sem var rosaleg. Við keyrðum í staðinn upp í fjall til að komast upp á hraðbrautina. Til að sleppa við umferðina! En. Þar hafði verið slys þannig að allir þurftu að snúa við. Eins svöng og við vorum þá stoppum við á pizzaskúr til að fá okkur slæsu. Sú pizza var ein sú besta sem við höfum smakkað. John, ástralskur fastakúnni útskýrði fyrir okkur að það væri ekki hægt að finna betri pizzur í margra km radíus! En við komumst heim heil á húfi og þá var klukkan orðin níu.
P1010097

Í gær var eldaður indverskur kjúklingur með niðurskornum kartöflum. Næsta skref í eldamennsku Rögnu og Önnu. Þetta heppnaðist mjög vel fyrir utan kjúllann sem var soldið hrár innst... En við erum samt sem áður snilldarkokkar! Passið ykkur!
Hanna og Valur áttu rómantíska kvöldstund á voða fancy veitingastað og Valur kom svo til að kveðja. Hanna á eftir að sakna þín Valur :’(

En! Að öðru. Nú er vendredi, helgin ahead. Og hvað skal gera? Jú, nú eru kaflaskil í dvöl okkar í France. Við flytjum til Dany fjölskyldunnar á morgun. Segjum skilið við Castel Arabel og fólkið. Lycée Horticole tekur við, og vinnan. Það er spennandi að sjá. En við ætlum að gleyma vinnu og skóla í kvöld, og sletta úr klaufunum;)

Segjum frá fjölskyldunni og helginni á mánudaginn:D

Bestu kveðjur
Hanna og Ragna


Ps. Hanna er líka komin með franskt kort og biður alla vinsamlegast um að hringja í sig;) 0033 0637 909609


Bráðabirgðablogg

Hey chicas!

First of all þá er ég orðin hebbað tönuð!! Sólin er búin að leika við peepsið hérna á Cote d’Azur. Við nýttum okkur það bara smá, kíktum til Monaco; hverjir hafa komið inn í flottasta Casinoið í öllu Frakklandi? Skelltum okkur svo án fyrirhafnar til San Remo í Ítalíu. Fengum Pizzas à la Italie, prego, bonjorno og allt það. Totally án fyrirhafnar.

Sunnudagurinn var tileinkaður JetSki. Scooter la mer? Hver sá sem veit hvað ég er að tala um skilur mig. Það var sweeet eins og alltaf. Ég og Anna gerðum eitt annað brilliant í útréttingunum okkar á mánudag. Við keyptum pókersett. Og ekki bara eitthvað pókersett, heldur Millenium póker. Og ekki bara það, heldur líka bleikt sett, for ladies!! Awesome! Nous avons joué un peu au poker. Getiði hver vann... N00bið hún Hanna María. Ósanngjarnt? I know. Ég tapaði 2 evrum.

Það var ekki eina skiptið. Ég, Valur og Hanna tókum annan leik or whatever. Þau unnu, höfðu af mér 5 evrur. Hver hefur fé af vinum sínum? Ekki ég allavega.

Nei, ég ætla ekki að vera bitur. Ég vinn þetta svo margfalt til baka í náinni framtíð. Ástæðan fyrir því að við erum bara inni að spila póker þessa dagana; það kemur nýtt fólk í hverri einustu viku og annað fólk fer. Það sýgur. Maður þarf að mingla og kynnast fólki, ekki bara fyrstu dagana, heldur alla daga!! Það er þreytandi. En við Hanna stingum af á laugardaginn. Dany fjölskyldan tekur á móti okkur. Eða vonandi. Við fengum einhverjar extra upplýsingar um þau í dag. Róleg að ljúga bara að okkur í fyrsta skiptið! Núna stóð að þau áttu engin börn og íbúð! Drasl.

Besstusstu kveðjur
Ragna Sif og co

djamm

Ps. Ég er orðin geðveikt svöl með nýtt franskt númer. Þannig að ég þurfi ekki að borga skít þegar þið sætu hringið;) (meira svona mamma og pabbi) En það er: 0033 6379 09569
Og næstum þetta blogg var tileinkað WT en það virkar ekki að staðfesta bloggið, æði. Þannig að ég blogga örugglega ekkert á WT í sumar... og heldur ekki á Cerasum þar sem ég man ekki notendanafn...


Mit all diesen Taschen nehmen Sie den Fahrstuhl!

  • Ég er ein...
  • ... með Önnu
  • Valur kæró er mættur á svæðið
  • Ergo, Hanna busy.
  • Við Anna vorum að enda við að gera og snæða awesome kjúklingasalat
  • Og ég lærði nýjan awesome frasa!
  • Mit all diesen Taschen nehmen Sie den Fahrstahl!!!
  • Nýjasti óvinur okkar varð nýjasti vinur okkar í fyrradag
  • Ashley bauð okkur í kveðjuparty heim til hans, hmm, nokkuð næs
  • En Önnu tókst að rífast við hann daginn eftir
  • Semsagt á miðvikudegi
  • Í kveðjupartyinu hennar Jelenu, eða eitthvað
  • Allir voru hressir
  • Laugin var vinsæl kringum miðnætti
  • Fólk að henda hvort öðru útí
  • Í fötunum þá...
  • Ragna sá til þess að motorola sími var eyðilagður
  • Oops :S
  • Löggan leysti partyið upp..
  • En samt fóru allir snemma að sofa:)
  • Og skólinn var bara mjög skemmtilegur
  • Hvernig stendur á því að nýji kennarinn, Fabien..
  • .. verður alltaf myndarlegri og myndarlegri?
  • En hann er það samt ekkert:S
  • Við spiluðum borðtennis og svitnuðum
  • Elduðum pasta með of pipraðri sósu
  • Ég og Anna
  • Ekki Hanna
  • Brasilíska gellan:
    ”what’s the thing called, you put it in your mouth and you go: ögh?”
    ”pepper??”
    ”yeeeea”
  • Hahaha, blondína
  • Hún sagði að nafnið mitt þýddi könguló á portúgölsku:S
  • Good or bad?
  • Ekki heiti ég Fjölmiðlar, eins og hún.
  • Annað gott quote á leiðinni að lauginni: “Ohhhh dem, ég gleymdi sundgleraugunum mínum uppi”
  • ”sólgleraugunum?”
  • Við Verzlingarnir (ekki Hanna; again) þrættum við MHingana um nýbúa.
  • Þeir eru bara fyrir!!
  • Fyrirgefðu Hjalti fyrir símtalið, það gaf samt alveg góða mynd af kvöldinu:/
  • Enn önnur helgin framundan.
  • Vá hvað þetta líður hratt!
  • Pæling að fara til Italy
  • Ahaaaa
  • Á bílaleigubílnum hennar Hönnu, hohoho
  • Þangað til næst kæru vinir

 

Kveðja, Ragna Sif (ekki Hanna)


Le week-end

 

Halló halló;)

Jæja ný vika liðin og ekki lítið af skemmtilegum atburðum sem fylgdu henni. Virku dagarnir voru ansi rólegir, við vorum bara mjög einbeittar að skólanum og slökuðum á. Skólinn er aðeins fDSCN0922arinn að taka meira á en það er búið að vera frekar mikið heimanám, sem við unnum samviskulega;) Á þriðjudaginn fórum við þrjár stöllurnar með Benjamin í Spar og versluðum í matinn. Um kvöldið var svo eldað dýrindis fahitas með Benna! Jana bættist í hópinn og Anna stakk af með henni. Við hin þrjú skelltum okkur upp í herbergi að horfa á Green Street Hooligans. Eftir það var bara farið snemma að sofa.

Á miðvikudaginn og fimmtudaginn var það bara ströndin, ping-pong og satc. Það verður nú samt að segjast að við erum ekki búnar að vera sem allra heppnastar með veðrið núna síðustu vikur en það er búið að vera frekar mikið skýjað. Á föstudaginn var meira að segja stormur, helli demba og brjálað DSCN0907rok. Þetta var meira að segja það slæmt að við festumst í skólanum í u.þ.b klukkutíma! En loks stytti upp og við tókum labbið niðrí Antibes og fengum okkur samloku sem Anna var búin að þrá alla vikuna og hafði varla talað um annað. Kvöldið var alveg hreint frábært. Já btw þá vorum við búnar að chilla mikið með Benna í vikunni og öll orðin góðir vinir, en þetta kvöld ákváðu sumir að taka vináttuna skrefinu lengra....dumdurumdum;) Já allavega þá löbbuðum við í Spar og keyptum okkur eina Passoa. Við byrjuðum uppá herbergi með Önnu og Benna en svo færðist fjörið niður í garðinn þar sem allir voru, m.a hinar íslensku stelpurnar sem við vorum DSCN0946aðallega með. Um tólf leytið löbbuðum við svo öll niðrí bæ og klúbburinn Le Village varð fyrir valinu. Ágætur staður en þar var samt spiluð frekar leiðinleg tónlist, bara House en það var þó alveg hægt að dansa við hana. Já, dansinn var ekkert sparaður þetta kvöldið má segja. Hanna og MH stelpurnar ákváðu þó að ljúka kvöldinu frekar snemma eða um þrjú leytið og Ragna og Benni joinuðu líka. Anna var eftir með hollensku gaurunum og sænsku stelpunum. Það var frábært að geta loks sofið út á laugardaginn og nýttum við okkur það alveg í botn. Sváfum til tólf og lágum svo lengur í rúminu. Hanna náði ekki að vera full um kvöldið en hún hafði náð sér í einhverja ljóta hálsbólgu nokkrum dögum áður svo hún joinaði stelpurnar í að liggja upp í rúmi með satcJ Síðar um daginn löbbuðum við út í búð og keyptum og vín;)

Laugardagskvöldið var “girls nights out”. Við byrjuðum á svölunum hjá okkur en færðum okkur svo upp á næstu hæð til MH stelpnanna. Við urðum allar frekar hressar og ætluðum að kíkja niðrá strönd á einn bar en rötuðum ekki lengra en í einhvern leikjasal að spila þythokkí
J
Eftir nokkra skemmtilega leiki löbbuðum við heim, margar hverjar berfættar og fórum svo í fótabað í sundlauginni. Sunnudagurinn er búinn að vera algjör letidagur líka þó við spöruðum ekki Hæhó jibbí jei lagið;) En það er náttla afmælisdagur mömmu hennar Hönnu í dag og já líka þjóðhátíðardagurinn. Skrýtið að vera svona langt í burtu á þessum merka degi. Manni finnst samt nokkurn veginn eins og allt standi í stað heima þegar maður fer svona lengi í burtu og pælir þar að leiðandi ekki mikið í því hvað er að ske heima. Við héldum jú líka ping-pong mót sem var mjög skemmtilegt;) Meðan Hanna var í sturtu og Ragna að afklæðast fyrir sína sturtu labbar Benni inn...heheh...frekar fyndið. En hún rétt náði að bjarga sér. Hann bað okkur að koma með sér út að borða og Ragna þorði ekki öðru en að svara játandi þó svo að við vorum búnar að plana að borða bara kellogs. Anna og Hanna voru þó ekki alveg nógu sáttar því þær voru ekki að nenna út, svo við breyttum planinu. Spurðum hann hvort hann væri ekki game í að elda annað kvöld. Hann virtist sáttur en greyið var búinn að dressa sig upp og samviskubitið nagaði okkur allt kvöldið.

Við héngum svo í tölvunni allt kvöldið hehe, og einmitt þegar Anna ætlar upp til sín heyrum við sírenur og crash! Við hlaupum út og kemur í ljós að löggan var að stoppa ungan mann. Hann liggur í götunni handjárnaður, við hliðiná beygluðum bílnum. Löggan hafði þá elt hann og klesst á hann til að stöðva bílinn. Rosaleg sjón, tveir löggubílar og menn sem bókstaflega rifu manninn úr jörðinni. En hér erum við tvær á leiðinni í háttinn. Ný skólavika framundan og guess what. Allur bekkurinn verður hækkaður upp í A1! Vei. Kannski maður kíki í Cannes í vikunni?

Endilega kommentið nóg og segið okkur slúður frá Íslandi!

Látum ekki líða langt að næsta bloggi!

BOY BOY

Ragna Sif og Hanna María


Gullmolar

Hanna er buin ad vera idin vid skemmtileg kommant undanfarid. Eg aetla ad reyna ad muna tau..

Hanna: Er manhattan nalaegt New York?
Ragna: Jaaa tad ma segja tad;)
Hanna: en er New York hofudborg Bandarikjanna?

Hanna: Eg hefdi ekki TURFAD tess!

Anna: Hvad heita aftur bresku grintaettirnir?
Ragna: Monty Python?
Hanna: Hvad er tad? eg hef aldrei heyrt tad...

Anna: le petit chaperon rouge... Er tad litla rauda haenan???

Anyways.. vid erum nuna bara a netinu upp i skola ad bida eftir tvi ad rigningunni linni. Helgin er framundan og tad er nog ad gera:D Sangria night i kvold. Bara Dis.. alltaf verdur mer hugsas til tin. Stelpurnar hafa ekki einu sinni smakkad hana!

A lundi mes amis :*
Kv Ragna

Næsta síða »

Um bloggið

Hanna og Ragna í Frakklandi

Höfundur

Hanna María og Ragna Sif
Hanna María og Ragna Sif
Við erum tvær saman í Frakklandi að læra frönsku! Verðum í Antibes í 9 vikur og segjum frá dvölinni hér á þessari síðu

Nýjustu myndböndin

Kveðjur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 25.júlí (1)
  • Fokkin bíó
  • ...dscn1176
  • Nice
  • ...dscn1171

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband