Færsluflokkur: Ferðalög

Drama Queen

Ný vika framundan, troðfull af sól, frönsku og nýju fólki.
Þegar við skildum við ykkur síðast vorum við á leið til Nice með lest.DSCN0856 Við sögðum ykkur einmitt frá nýja “vini” okkar Ashley Holley, aka Ass-hole. Við getum svo sannarlega sagt að hann hafi haldið uppi dramanu í síðustu viku. Hann heimtaði að fá að skutla okkur heim, sem hann gerði. Við stungum hann af og héldum til Nice. Þar var veðrið ekki svo gott en við náðum samt að versla aðeins áður en okkur rigndi niður. Þrátt fyrir að við höfum ekki verið iðnar við shoppingið þá náðum við að eyða hátt í 50000 kr á einni viku! Reiknið nú:O
Ass-hole sendi okkur sms um kvöldið en við ætluðum bara að vera inni að horfa á SATC, þreyttar eftir langan dag. Hann lét okkur þó ekki vera daginn eftir, heldur kom til okkar rétt eftir hádegi. Við sátum við laugina í okkar mestu makindum og kemur þá ekki Anna Hildigunnur með Jönu og varar okkur við honum. Jana hafði víst sína reynslu af honum og orðið á götunni var að hann væri að nota stelpur í skólanum. Það er fyndin saga um hann, en hérna hengur hann, 28 ára drengurinn, ekki í skóla, býr annars staðar og hengur yfir skólafólkinu á Castel. Samt baktalar hann það og segir hvað hér sé ekkert að gera og hvað sumt fólkið sé óþroskað. Hann þóttist eiga svo mikla vini í Cannes, en annað hefur komið í ljós. Afhverju hengur hann ekki frekar með jafnöldrum sínum þar heldur en 18 ára Hollenskum hasshausum?

Þetta kvöld komumst við þó ekki hjá því að elda með honum inni í íbúð, hann bauð okkur nú reyndar upp á hvítvín. Og fór meira að segja úr skyrtunni til að olían “myndi ekki skvettast á skyrtuna”, það var greinilega betra að fá hana á bert skinnið...

En við slógumst þó fljótt í hóp með hinu fólkinu sem sat úti. DSCN0853Þau voru á leið á klúbb; Les Pêcheurs, sem var nearby. Við vorum strax orðnar smá í því;) Þessi klúbbur var rosalegur. Fimmtudagskvöld og hann var pakkaður. Risapleis, úti og inni, nokkrir barir, einn sá stærsti sem við höfðum séð! Fengum okkur drykki og dönsuðum og dönsuðum. Sober Ass-hole hékk utan í Hönnu, og þurfti víst geðveikt að “passa” hana. Hún náði þó að stinga hann af fljótt og varð hann massa pirraður! Enda var Ragna að dansa við David og Hanna vildi ekki einu sinni tala við hann. Skemmtileg saga að segja frá því samt að David þekkti einmitt merkið á bolnum hennar Rögnu. Custo Barcelona??
Uu yes, u know it?
Yes I have one myself.
Og þannig byrjaði dansinn. Þvílíkir taktar sem gaurinn hafði. Vatnsgreitt hár, þekkti merkjavöDSCN0860ru og hommadansmúv. Þvílíkur skápahommi. En staðurinn lokaði eitt og þá var haldið heim, allur hópurinn saman. Hanna og Anna voru frekar fullar og báðu einhvern gæja á vespu að skutla sér heim. Ragna var að labba með Ass-hole til að sleikja hann upp. Stelpurnar brunuðu framhjá og ekki kættist Ass-hole við það. Þegar þær komu heim voru hollensku strákarnir að reykja. Jónu. Frábært. Þvílíkir dónar. Þarna er eins og þið heyrið, engin gæsla! Ekkert mál fyrir hálvita að dópa að vild. (sjá mynd)
DSCN0862
Ragna kom og við fórum tvær í háttinn. Ekki leið á löngu áður en Ass-hole hringdi, geðveikt sorry. Hann vildi koma yfir til að ræða málin, leysa þetta issue. Hvaða issue? Láttu okkur vera, þá leysist þetta. En hann kom og það fyrsta sem Hanna öskraði á hann var:
“You just come here to fuck women! You just want a threesome with us! You Ass-hole! Everybody hates you, you know!”
Þá byrjaði vælið og Hanna að afsaka sig. Þetta var virkilega fyndið. Hann sat þarna í stól á móti rúmunum og Hanna sofnaði í miðri ræðunni hans. Þetta endaði allavega þannig að við knúsuðum hann. Fjúkk hann var farinn. Meðan dramanu stóð hjá okkur fékk Anna fyrsta flokks hasskennslu beint frá Amsterdam. Hún bankaði svo á hurðina um þrjú leytið og gisti. Hún fékk líka að taka gest með sér og við getum bara sagt að við séum fegnar því að hafa verið sofandi...

Neinei, Anna gerði ekkert ósiðferðislegt. Ragna vaknaði svo víst aftur, og þær DSCN0871Anna fóru á trúnó fram undir morgun! Föstudagurinn var rólegur. Ass-hole var bitur comme d’habitude. Og við héldum á ströndina
J

Föstudagskvöld, við með bjór í annarri og pizzu í hinni, meðan the Dutch ones rúlluðu upp jónu. David fór upp á herbergi í sturtu. Ekki frásögufærandi, nema hann kemur aftur niður í CUSTO BOLNUM SÍNUM. Við hröðuðum okkur inn í herbergi, snemma. Einn að reyna eitthvað gegnum Custo. Ass-hole bankaði fljótt upp á til að rukka okkur um áfengispeninginn. Hanna rétti honum 15 evrur og skellti DSCN0876hurðinni á nefið á honum. Við þurftum að vakna snemma til að pakka fyrir Chateauneuf de Grasse ferðina okkar.

Early rise og við settum í fimmta gír til að skila herberginu okkar hreinu og fínu. Við tókum lestina til Cannes, með Guðrúnu Lilju. En mamma hennar var einmitt með mömmu Rögnu í húsinu. Þangað mættum við fyrir hádegi og fengum dýrindis önd í hádegisverð. (Mynd: Ragna komin upp á þak...)

Vinkonurnar héldu til Cannes en við lillurnar lágum í leti. Sólin var reyndar ekki til staðar en við fundum okkur ýmislegt til viðurværis. Ping pong, Harry Potter ofl. Um kvöldið voru pantaðar hinar frægu Pizzu Joseph. Við lillurnar sóttum þær; merkileg ferð. Fyrsta bílferðin hennar Rögnu undir stýri í France og Hanna fékk að sjá torgið frá því í ferðinni sem farin var eftir 9.bekk. Þá nóttina fékk Hanna þriðju rasskinnina, við erum að tala um þrefalt moskítóbit sem klæjar as hell. Ragna var líka stungin, við höldum að þær hafi tekið sér bólfestu undir sænginni. SunnudagDSCN0886urinn var hinsvegar sólríkur og tanið var sko workað. Eftir glæsilegar veigar keyrðu mömmurnar okkur útá lestarstöð og við biðum saman eftir lestinni. En ekki kom hún. Eftir dálitla stund komumst við að því að það var verkfall! Sem er ekki mjög óalgengt að gerist í La France. Þær neyddust víst til að keyra okkur heim! Í leiðinni kíktu þær á nýja herbergið okkar.
Það er reyndar af lægri klassa en hitt, en er samt sem áður ágætt. Aðeins minna og ekkert eldhús. Hér eru engir maurar, en lyktin er hinsvegar verri. Hér fyrir neðan er samt sameiginlegt eldhús, sem er mjög gaman. Þá geta allir eldað saman og borðað í garðinum. Það gerðum við einmitt í gærkvöldi, eftir langan borðtennis dag með Önnu og Benjamin. En það er 25 ára Þjóðverji sem er með okkur í bekk. Hann er mjög fínn, sætur, næs og hér er barist um hylli hans;) Í matinn voru pylsur með tómat, sinnep og hráum, hoho. Ass-hole og hollensku vinirnir héngu í kring í allan dag og hann með þennan óborganlega bitra svip á grímunni. Benjamin er orðinn virkilega góður vinur okkar og ætlar að labba með okkur í skólann á morgun og meira að segja að elda með okkur! Hann kíkti á herbergið okkar meðan við þrjár vorum með slumber party að horfa á SATC;)

Well now it’s nighty night

et

à bientôt!!

Endilega kíkið á myndirnar, erum að berjast við að setja sem flestar inn.
Kærar kveðjur til allra í kuldanum.. hehe. Btw hér er glampandi sól ALLA DAGA
J

C’est tout
Hanna María et Ragna Sif


Fyrstu dagarnir!

Jæja! Nú erum við loksins komnar!!

Þetta lítur allt mjög vel út og allt leikur við okkur. Ferðin gekk vel og tekið var á móti okkur með opnum örmum. Herbergið okkar er fyrsta flokks fyrir utan hundruði maura á gólfinu, sem við náðum reyndar að sópa burt. Við erum með okkar eigin svalir, eldhús, baðherbergi og sjónvarp. Sundlaugin er beint fyrir utan dyrnar og umhverfið er þægilegt og kósý. Fimm mín göngufjarlægð frá miðbæ Juan les Pins! Hefðum ekki getað ímyndað okkur betri stað. Fyrsta kvöldið fengum við okkur pítsu á einum af veitingastöðunum en villtumst því miður á leiðinni heim
L
Það bjargaðist þó með kortið við hönd, þótt grimmir hundar hafi gelt á eftir okkur.
DSCN0806

Sunnudagurinn var rólegur og við kynntum okkur hverfið. Við þorðum reyndar ekki upp að barnum en hann er í garðinum ásamt sameiginlegu eldhúsi, borðtennisborði ofl. Við fórum niðrá strönd, leigðum okkur bekk og flatmöguðum í sólinni. Hanna fór yfir frönskuna til að auka líkurnar á því að við lendum í sama bekk. Um kvöldið elduðum við dýrindis eggjasamloku eftir að hafa verslað í matinn. Við ætlum að reyna að vera duglegar við eldamennskuna í sumar til að spara pening. Við erum alveg búnar að komast að því að þetta á eftir að vera dýrt ferðalag. Bernard sem kynnti okkur fyrir pleisinu og gistiheimilinu sagði okkur skýrt frá því á frönsku að við gætum labbað í skólann og tekið strætó eða lest hvert á land sem er. Pæling að skreppa til Milano?

Skólinn byrjaði klukkan níu á mánudagsmorgun og við vel útsofnar. Öruggast var að taka strætóinn í skólann fyrsta daginn. Fyrst var kynning fyrir allan nýja hópinn og síðan rútuferð um Antibes sem einkenndist af miklum hita og hungri. Allt saman á frönsku NB og við skildum allt! (næstum). Inntökuprófið var eftir hádegi og var það mjög afslappað. Við sátum hlið við hlið og hjálpuðumst soldið að... Prófin voru samt ekkert ALVEG eins... Það gekk bara vel en þyngdist með blaðsíðunum. Svo voru nemendurnir teknir einn í einu inn í annað herbergi fyrir munnlegt próf. Það gekk ekki eins vel verður að segjast! En við vorum spurðar hvort við værum vinkonur og hvort við vildum vera saman í bekk, sem betur fer.DSCN0822

Við vorum fegnar að vera búnar með prófið og skelltum okkur á ströndina eftir að hafa keypt handklæði. Við fundum nefnilega út að það er ódýrara heldur en að leigja bekk fyrir 17 evrur skiptið... Próflokafagnaður var um kvöldið og byrjuðum við með sveppasúpu og hvítvín í hönd um kvöldið. Hitinn og matarleysið gerði það að verkum að hálf hvítvínsflaska fór beint í hausinn. Voða sætar héldum við niðrí bæ og byrjaði áreitið fljótt af frönskum peyjum. Við létum þá þó eiga sig, gelið var ekki að heilla. Eftir fáeina kokteila og rölt um skóbúðir fórum við fljótt heim. Horfðum á einn SATC – must. Morguninn eftir var þó pain. Nenntum ekki að labba þannig að við tókum strætó, en án þess að borða. Við komumst að því að við erum í sama bekk! En ekki fyrir advanced students eins og ég og Beta könnumst við. Heldur A1- Sem eins og fólk getur getið sér til um er næst lélegasti bekkurinn!! Við vorum ósáttar og sármóðgaðar. Við náðum ekki einu sinni í A1 heldur þurftum við að hafa mínusinn líka
L
DSCN0825Tólf manns í bekk sem reyndist fínt og kennarinn æði. Ekta frönsk sextug kona sem leit út fyrir að vera fertug. Það var mjög gaman í tíma, þótt við þráðum að komast heim að sofa og borða. Við erum með 3 íslenskum stelpum í bekk og 2 aðrar lentu í öðrum bekk. Ein er úr Verzló og hinar í MH. Mjög fínar. Þetta er draumaskólinn – franska allan daginn og hættir klukkan 12;)

Það var skýjað þannig að við tókum strætóinn til Carrefour og versluðum allt mögulegt! Td fleiri handklæði og mat. Síðan var það þynnkudagur heima og skruppum smá í bæinn að versla. Hanna keypti sér geðveikar hvítar stuttbuxur og Ragna klikkaða hvíta hælaskó.  Fajitas var í matinn og bragðaðist fínt. Hanna þurfti að hlaupa um allan bæ í leit að káli. Þegar við vorum að klára að borða var skyndilega bankað á hurðina. Við litum á hvor aðra og grunaði að það væri verið að kvarta undan hávaða. En það reyndist vera enskur strákur sem að bauð sér inn. Hann ætlaði bara að koma til að tjatta. Hann reyndist vera 28 ára frá London. Bara að leika sér á rivierunni. Klárlega pabbastrákur sem hefur ekki unnið í mörg ár. Við spjölluðum við hann í dágóða stund og kvöddum síðan og ítrekuðum að við værum bara að fara í háttinn. Horfðum á nokkra SATC fyrir svefn.

Í morgun löbbuðum við í skólann og rétt náðum á tíma. Kennarinn bað um að fá að tala við okkur íslensku stelpurnar í frímínútum. Hún bauð okkur að hækka um bekk. Við hugsuðum okkur vel um og ákváðum að vera um kyrrt því okkur líkaði vel við kennarann og við erum svo lélegar að tala frönskuna. Við vildum allar vera áfram.
Við vonumst bara til að þegar við förum í hinn skólann í júlí þá getum við farið í eitthvað erfiðara, þá verðum við orðnar svo góðar.

Nú er enski strákurinn sem við vitum ekki hvað heitir að bjóða okkur far og að koma með sér til Cap d’Antibes. Hehe, við erum sko í tölvunni!!
Hann situr hérna á móti okkur og segist ætla að bíða. Við erum þó búnar að segja að við ætlum bara að labba heim. Hann hljómar kannski sem einhver algjör lúði, en hann lúkkar alveg vel, brúnn og vel tilhafður. Við ætlum samt bara að fara til Nice að shoppa! Okkur þykir það nú ekki leiðinlegt..

Reynum að vera duglegar að blogga, því það er þráðlaust net í skólanum. Við reynum að blogga 2x í viku og setja inn myndir. Sem verða vonandi aðeins meira spennandi eftir því sem líður á...

Söknum ykkar allra voða mikiðJ
Kærar kveðjur frá Antibes

Au revoir et nous vous aimons:*
Hanna María og Ragna Sif


Einn dagur í brottför!

Nú er loksins komið að því. Aðeins einn dagur til stefnu. Við erum búnar að skipuleggja allt og erum næstum ferðbúnar. Þetta er mikið tilhlökkunarefni og höfum við miklar vonir til ferðarinnar;)Sex on the beach










Sjáumst Frakklaaaand!

Kveðja
Ragna Sif og Hanna María
Við á ströndinni...


« Fyrri síða

Um bloggið

Hanna og Ragna í Frakklandi

Höfundur

Hanna María og Ragna Sif
Hanna María og Ragna Sif
Við erum tvær saman í Frakklandi að læra frönsku! Verðum í Antibes í 9 vikur og segjum frá dvölinni hér á þessari síðu

Nýjustu myndböndin

Kveðjur

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • 25.júlí (1)
  • Fokkin bíó
  • ...dscn1176
  • Nice
  • ...dscn1171

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (8.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband